Karamellur - uppskrift
karamellur
360 ml rjómi
200 g sykur
140 g púðursykur
80 g kornsíróp
1,5 tsp vanilla
1,5 tsp salt
13 g smjör
Setjið öll innihaldsefnin (nema smjörið) í stóran pott við meðalháan hita.
Passið að potturinn sé djúpur því karamellan búbblar mikið þegar hún fer að sjóða.
Notið stafrænan hitamæli til þess að mæla hitann á karamellublöndunni, hún þarf að ná a.m.k. 122°C. Ef hún fer hærra verða karamellurnar harðari en ef farið er upp fyrir 124°C getur karamellan brunnið.
Takið karamelluna af hitanum þegar hún er búin að ná réttu hitastigi og hrærið smjörinu út í.
Hellið í ferhyrnt form með bökunarpappír og látið standa í 2 klst, skerið í bita.
Sniðug heimagerð jólagjöf
P.S. ef þið hafið nóg annað að gera en að standa yfir pottunum þá erum við með þessar karamellur til sölu á Ketilkaffi eða á hér