1
/
of
1
Bótaník
Moya Matcha Traditional - lífrænt 30g
Moya Matcha Traditional - lífrænt 30g
Regular price
3.790 ISK
Regular price
Sale price
3.790 ISK
Unit price
/
per
Taxes included.
Couldn't load pickup availability
Lífrænt vottað matcha frá Moya.
Traditional matcha duftið hefur gott jafnvægi á milli sætu og biturleika, mikið umamibragð og rjómakennda áferð.
Traditional matcha duftið er unnið úr fyrstu og annarri uppskeru telaufa.
Traditional matcha duftið er ekki jafn sætt og Premium duftið og ögn bitrara á bragðið og hentar því mjög vel í sæta matcha drykki þar sem sætan vegur upp á móti biturleikanum. Hentar einnig vel í hefðbundna matcha drykki fyrir þá sem kjósa sterkt matcha bragð.
Upprunaland: Japan
Um Moya Matcha
Moya Matcha er ræktað í Uji héraðinu í Japan en það svæði er þekkt fyrir aldagamla hefð fyrir ræktun á hágæða grænu tei. Í Uji héraði er mjög frjósamur jarðvegur og hreint vatn og landslagið og veðurfar móta kjöraðstæður til ræktunar á grænu tei. Moya Matcha er ræktað á litlum lífrænum teökrum, unnið á staðnum og síðan sent í litlum skömmtum til að tryggja hámarks ferskleika og gæði. Allt ferlið miðar að því að varðveita góða eiginleika og næringargildi telaufanna og varðveita sem mest af steinefnum og andoxunarefnum.
Share
